Hertar samkomutakmarkanir – 10 manns í hólfi á söfnum, starfsfólk meðtalið

Gildir frá 25. mars til og með 15. apríl 2021

Safnaráð vekur athygli á hertari samkomutakmörkunum. Ný reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar tók gildi 25. mars og gildir til og með 15. apríl 2021.

Nú gilda 10 manna fjöldatakmarkanir og athugið að börn fædd 2015 og síðar teljast ekki  með í hámarksfjölda.

Þær samkomutakmarkanir sem eiga við söfn gilda um allt land frá og með 25. mars. Ekki er gerð krafa af hálfu safnaráðs að söfn hafi opið eða loki, söfn skulu íhuga vel hvort þau hafa tök á því að hafa opið við þessar aðstæður.

Fjöldatakmarkanir:

  • Hámarksfjöldi einstaklinga í sama rými eru 10 einstaklingar  – þetta á bæði við gesti og starfsfólk.
  • Börn fædd 2015 og síðar teljast ekki með í hámarksfjölda – þetta er breyting frá fyrri reglugerð.
  • Grímuskylda er fyrir alla fædd 2005 og eldri.
  • Nálægðartakmörk verða tveir metrar á milli ótengdra aðila.
  • Þar sem ekki er hægt að viðhafa nálægðarmörk er skylt að andlitsgríma verði notuð.
  • Tryggja skal að blöndun einstaklinga verði ekki á milli hólfa, hvorki í inngangi/útgangi, salernisaðstöðu, veitingasölu eða annarri þjónustu og að fyllstu sóttvarnaráðstafana sé gætt.

Sóttvarnir:

  • Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti.
  • Minna skal almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum.
  • Tryggja skal góða loftræstingu þar sem umgangur fólks er nokkur og lofta reglulega út.
  • Tryggja þarf aðgang að handsótthreinsi fyrir almenning og starfsmenn við innganga og í grennd við yfirborð sem margir snerta s.s. snertiskjái og afgreiðslukassa.
  • Sinna þarf þrifum og sótthreinsun yfirborða sem margir snerta eins oft og unnt er.
  • Almenningur og starfsmenn skal minna á einstaklingssóttvarnir með merkingum og skiltum.

 

605b9c0be788ce84345a9cd4_Takmarkanir-a-starfsemi_25mars-rgb