Opið fyrir umsóknir til 31. ágúst 2020
Safnaráð minnir á að síðasti skiladagur umsókna um viðurkenningu samkvæmt safnalögum nr. 141/2011, til að umsóknin verði afgreidd áður en umsóknarfrestur í safnasjóð fyrir árið 2021 rennur út, er 31. ágúst 2020.
Umsóknareyðublað vegna viðurkenningar safns má finna hér, eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókninni:
- Staðfesting frá eiganda og/eða stjórn safns um að óskað er eftir viðurkenningu.
- Afrit af ársreikningi ársins 2019.
- Afrit af gildandi stefnumörkun.
- Afrit af söfnunarstefnu.
- Afrit af neyðaráætlunum.
- Afrit af síðustu úttekt eldvarnareftirlits.
- Afrit af starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti.
- Afrit af síðustu úttekt á öryggiskerfum.
- Afrit af staðfestingu um trygg fjárframlög næstu fimm ára sem tryggja grunnrekstur safnsins.
- Afrit af rekstraráætlun næstu fimm ára.
- Yfirlitsskýrsla umsækjanda um viðurkenningu, fyllt út á umsóknavef safnaráðs.
- Einnig þarf stofnskrá/samþykktir safnsins að uppfylla skilmála safnaráðs.
Frekari upplýsingar um viðurkenningu safna er að finna hér.
Umsækjendur eru minntir á að vista sniðmátið áður en fyllt er inn í það svo engar upplýsingar glatist.
Nánari upplýsingar fást á hjá framkvæmdastjóra safnaráðs í síma 820-5450.
Tekið er við rafrænum umsóknum í tölvupósti á netfangið safnarad@safnarad.is
Einnig má senda viðbótargögn ef við á í pósti á:
Safnaráð
Gimli, Lækjargötu 3
101 Reykjavík