Ársskýrsla safnaráðs 2018 komin út

Ársskýrsla safnaráðs árið 2018 er komin út og er nú aðgengileg á vef ráðsins. Skýrslan var samþykkt á 182. fundi ráðsins í apríl síðastliðinn. Í skýrslunni er farið yfir starfsemi safnaráðs árið 2018 og í viðaukum má finna yfirlit yfir úthlutun úr safnasjóði það ár. Í viðaukum er einnig samantekt á rekstri viðurkenndra safna árið 2017.

Skýrsluna má skoða eða hlaða niður hér.