Eitt safn fær viðurkenningu

Sjóminjasafn Austurlands er viðurkennt safn

 

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur tekið til umfjöllunar tillögu safnaráðs frá 25. október 2016 um viðurkenningu safna samkvæmt safnalögum nr. 141/2011.

Ráðherra veitti að tillögu ráðsins einu safni viðurkenningu, Sjóminjasafni Austurlands.

Safnaráð tekur við umsóknum um viðurkenningu til afgreiðslu á árinu 2017 til 31. ágúst 2017. Frekari upplýsingar um umsóknarferlið má fá hér.