Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað safnaráð, samkvæmt nýjum safnalögum sem tóku gildi 1.janúar s.l.
Megin hlutverk safnaráðs er að hafa eftirlit með safnastarfsemi, vinna að
stefnumörkun um safnastarf, fjalla um stofnskrár og viðurkenningar safna
og veita umsagnir um styrkumsóknir úr safnasjóði.
Safnaráð er þannig skipað:
Ólafur Kvaran formaður, skipaður af ráðherra mennta- og menningarmála án tilnefningar
Ragna Árnadóttir, varaformaður, skipuð af ráðherra mennta- og menningarmála án tilnefningar
Haraldur Þór Egilsson tilnefndur af Félagi íslenskra safna og safnmanna
Sigríður Björk Jónsdóttir tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Guðbrandur Benediktsson tilnefndur af Íslandsdeild ICOM, Alþjóðaráðs safna
Varmenn eru:
Valborg Snævarr, skipuð af ráðherra mennta- og menningarmála án tilnefningar
Birta Guðjónsdóttir, skipuð af ráðherra mennta- og menningarmála án tilnefningar
Sigríður Melrós Ólafsdóttir, tilnefnd af Félagi íslenskra safna og safnmanna
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Ólöf K. Sigurðardóttir, tilnefnd af Íslandsdeild ICOM, Alþjóðaráðs safna