Málþing 16.maí um söfn, sjálfbærni og vellíðan

Í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands kl. 13-16

Íslandsdeild ICOM, FÍSOS og safnaráð blása til málþings í aðdraganda Alþjóðlega safnadagsins undir yfirskriftinni Söfn, sjálfbærni og vellíðan, sem jafnframt er þema safnadagsins árið 2023. Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands þriðjudaginn 16. maí kl. 13:00-16:00 en að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar í Myndasal safnsins. Á dagskránni verða erindi sem varpa ljósi á ýmis verkefni og fjölbreytt starf safna til þess að stuðla að aukinni sjálfbærni og vellíðan í samfélaginu.

Málþing: Söfn, sjálfbærni og vellíðan

Dagskrá:

13:00 – Málþing sett

13:05 – Lykilfyrirlestur: Söfn og vellíðan. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor í safnafræði við Háskóla Íslands, og Halldóra Arnardóttir, listfræðingur.

Í þessu opnunarerindi verður rætt um tengsl safna við hugtakið vellíðan. Sérstaklega verður vikið að rannsóknarverkefninu Inclusive Memory sem snýr meðal annars að því að skoða með hvaða hætti söfn þurfa að huga að vellíðan gesta sinna.“

13:30  –  Tökum höndum saman: söfn og jaðarhópar.
Halla Margrét Jóhannesdóttir, verkefnastjóri miðlunar, Listasafni Reykjavíkur, og Hlín Gylfadóttir, verkefnastjóri samfélagsverkefna og safnfræðslu, Borgarsögusafni Reykjavíkur.

13:50 – Þekkingarbrunnur eldri kynslóða: samvinnuverkefni um greiningu gamalla ljósmynda. Edda Björk Jónsdóttir, sérfræðingur á sviði fræðslu og miðlunar, Síldarminjasafni Íslands

14:10 – komd’inn – ادخل – proszę wejdź – come in: ráðgjafahópur og viðburðadagskrá í Gerðarsafni. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, listfræðingur

14:30 – Hlé.

14:40 – Lykilfyrirlestur: Í sautján horn að líta hjá söfnum: sjálfbærni, sjálfbær þróun og heimsmarkmið. Bergsveinn Þórsson, dósent við Háskólann á Bifröst „Hver eru samlegðaráhrif sjálfbærni og faglegs starfs safna? Geta söfn stutt við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna? Í fyrirlestrinum verður rýnt í hlutverk safna í sköpun sjálfbærrar framtíðar íslensks samfélags.”

15:05 – Viðnám: samspil myndlistar og sjálfbærni. Ragnheiður Vignisdóttir, fræðslustjóri, Listasafni Íslands.

15:20 – Tækniminjasafn Austurlands: sjálfbær endurreisn? Þrjú raundæmi.
Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir, safnstjóri, Tækniminjasafni Austurlands.

15:40 – Sjálfbærni og starfsemi Grasagarðs Reykjavíkur

Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðs Reykjavíkur.

16:00 – Málþingi slitið – boðið upp á léttar veitingar í Myndasal.

Á ári hverju er Alþjóðlegi safnadagurinn haldinn hátíðlegur 18. maí í samstarfi FÍSOS og Íslandsdeildar ICOM með öflugum stuðningi frá safnaráði og söfnunum í landinu. Markmiðið með deginum er að kynna og efla safnastarf á Íslandi en þá eru söfn hvött til að standa fyrir viðburðum og jafnvel ókeypis aðgangur í tilefni dagsins.