Vorfundur höfuðsafna og safnaráðs – söfn og gervigreind

Fimmtudaginn 16. apríl kl.13 fór fram árlegur Vorfundur höfuðsafna og safnaráðs undir yfirskriftinni, söfn og gervigreind, sem haldinn var í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Í kjölfar fundarims fór fram úthlutunarboð safnaráðs þar sem Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri afhenti styrki úr aðalúthlutun Safnasjóðs 2026 f.h. menningarráðuneytisins.

SÖFN OG GERVIGREIND

Dagskrá Vorfundar höfuðsafnana og safnaráðs fimmtudaginn 16. apríl 2026 kl. 13.00 – 16.00

Fundarstjóri: Ragnhildur Guðmundsdóttir

13:00 
Gestir boðnir velkomnir – Safnstjórar höfuðsafna og framkvæmdastjóri safnaráðs  

13:10 
Lilja Dögg Jónsdóttir 
Lilja Dögg er framkvæmdastjóri Almannaróms, miðstöðvar um máltækni. Almannarómur sækir fram fyrir Ísland og íslensku í stafrænum heimi til að tryggja að samfélagið okkar geti fullnýtt tækifæri tækninnar á eigin forsendum.  Lilja á fjölbreytta feril að baki, hún er með MBA gráðu frá Harvard og starfaði í Bandaríkjunum um árabil sem stjórnandi í hugbúnaðarþróun og nýsköpun. Sem sérfræðingur í forsætisráðuneytinu leiddi Lilja Dögg stefnumótun á sviði gervigreindar og fór meðal annars fyrir ritun stefnu Íslands um gervigreind. 

13:35 

Stutt innslag – Steinunn Harðardóttir og Nathalie Jacqueminet forverðir á Listasafni Íslands – gervigreind nýtt í forvörsluverkefnum 
Steinunn og Nathalie segja frá nokkrum dæmum um hvernig þær hafa nýtt gervigreind í daglegum störfum og rannsóknarvinnu. 

13:45 
Stutt innslag – Brynjólfur Borgar Jónsson og Bergur Tamini frá DataLab fyrir Minjasafn Austurlands – Safnari | Sérhæfð gervigreind fyrir söfn á Íslandi  

DataLab og Minjasafn Austurlands hófu nýlega þróunarverkefni sem fékk styrk úr Safnasjóði. Safnari er hugbúnaðarlausn sem tengist Sarpi og leysir fjölbreytt verkefni á grundvelli gagna um safnkostinn sem þar eru geymd. Hugmyndin er að Safnari verði gagnlegur aðstoðarmaður safnafólks á Íslandi í daglegum störfum. DataLab segir frá verkefninu og sýnir fyrstu útgáfu Safnara. 

13:55 
Hjálmar Gíslason – Gervigreindi starfsneminn: Nýtist hann í safnastarfi?“ 
Stofnandi GRID ehf 

Hjálmar er óseðjandi áhugamaður um gögn, tölvur, tækni og nýsköpun. Hann byrjaði að forrita átta ára gamall og seldi fyrsta hugbúnaðar­leyfið þegar hann var fjórtán. Á síðustu þrem áratugum hefur hann stofnað fimm hugbúnaðar­fyrirtæki, nú síðast GRID þar sem hann starfar sem framkvæmdastjóri. 

14:20 – 14:40 
Kaffihlé 

14:40 
Stutt innslag – Gundega Šķēla  
Gundega hlaut nýlega þriggja ára doktorsstyrk frá Rannís fyrir doktorsrannsókn sína á því hvernig listasöfn geta nýtt stór tungumálalíkön, með sérstakri áherslu á Vasulka-safnið sem varðveitt er í Listasafni Íslands. Í erindi sínu mun hún kynna þetta nýja rannsóknaverkefni og jafnframt fjalla stuttlega um hvernig söfn eru um þessar mundir að gera tilraunir með og beita gervigreind í starfi sínu.  

14:50 
Stutt innslag – Vilhjálmur H. Ólafsson, Þjóðminjasafni Íslands – Gervigreind og myndavélaöryggi– Öryggismál í söfnum 

Vilhjálmur er umsjónarmaður öryggismála í Þjóðminjasafni og fyrrum þjálfunar- og gæðaeftirlitsstjóri hjá Öryggismiðstöðinni. Þjóðminjasafnið hefur á undanförnum mánuðum verið að endurskoða ýmsa þætti í öryggismálum og mun deila þeirri þróun sem hefur orðið í vöktun og greiningu í gegnum öryggismyndavélar. 

15.00 – 16.00  
Bjarki Valtýsson – Söfn, tæknirisar og gervigreind 

Í þessu erindi fjallar Bjarki, prófessor við List- og menningarfræðideild Kaupmannahafnarháskóla, um notkun safna á stafrænum miðlum og gervigreind. Erindið byggir á bók hans, The Platformisation of Museums, sem kemur út síðar á árinu. Í erindinu gerir Bjarki grein fyrir hvernig söfn nýta ólíka stafræna miðla, svo sem smáforrit, hlaðvörp, stafræna gagnagrunna, Facebook, Instagram, X og TikTok, og hvernig þessi notkun tengist valdi tæknirisa á borð við Meta, Google, Microsoft og Amazon. Að lokum ræðir hann einnig möguleika og takmarkanir safna í tengslum við gervigreind. 

16:00 – Úthlutunarboð safnaráðs

Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti mun afhenda styrki úr aðalúthlutun Safnasjóðs 2026.
Léttar veitingar verða í boði