Aðalúthlutun safnasjóðs 2026

Menningarráðherra hefur úthlutað úr aðalúthlutun safnasjóðs 2026

Úthlutunarboð safnaráðs  fór fram í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands við hátíðlega athöfn að viðstöddum góðum gestum fimmtudaginn 16. apríl.
Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu  ávarpaði gesti og  úthlutaði 131 styrk, alls 182.700.000 krónum úr safnasjóði til 51 styrkþega. 


Styrkir til eins árs  voru 123 talsins að heildarupphæð 154.700.000 kr. til 51 styrkþega.

Öndvegisstyrkir 2026-2028 til viðurkenndra safna voru átta og skiptast svo:  28.000.000 kr. fyrir árið 2026, 29.000.000 kr. fyrir árið 2027 og 16.000.000 kr. fyrir árið 2028. Heildarupphæð Öndvegisstyrkja 2026 fyrir öll styrkárin 2026 – 2028 er þá 73.000.000 kr. Úthlutanir fyrir árin 2027 og 2028 eru veittar með fyrirvara um fjármögnun sjóðsins. Eldri Öndvegisúthlutanir með úthlutun fyrir árið 2026 voru 10 talsins og styrkupphæð er 41.900.000 kr. 

Í aðalúthlutun safnasjóðs 2026 bárust sjóðnum alls 169 umsóknir, 156 umsóknir til eins árs að heildarupphæð 335.139.615 kr. og 11 Öndvegisumsóknir. Umsóknarupphæð Öndvegisstyrkja var 50.250.630 kr. fyrir árið 2026 og fyrir allan styrktímann 2026 – 2028 var heildarumsóknarupphæð alls 127.071.480 kr.  Styrkþegum var birt niðurstaðan 24. janúar síðastliðinn og má finna nánari útlistun á þeim hér. Samkvæmt 7. mgr. 22. gr. safnalaga, úthlutar menningarráðherra styrkjum úr safnasjóði að fengnum tillögum safnaráðs.

Odda Júlía Snorradóttir, framkvæmdastjóri Nýlistasafnsins og Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri

Heildarstyrkveitingar 

Styrkveitingar til eins árs úr safnasjóði 2026 og fyrir Öndvegisstyrki 2026 – 2028 fyrir 2026 er 182.700.000 kr.
Þegar hafa verið úthlutaðar 41.900.000 kr. fyrir árið 2026 vegna Öndvegisstyrkja fyrri ára, 2024 – 2026 og 2025 – 2027.
Heildarstyrkupphæð aðalúthlutunar 2026 með lofuðum Öndvegisstyrkjum fyrri ára er því 224.600.000 kr.

Úthlutunarboð Safnaráðs fór fram í  framhaldi af árlegum fundir höfuðsafnanna þriggja; Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Yfirskrift fundarins var Söfn og gervigreind og fór fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 16. apríl frá 13.00 – 16.00. 

Hægt er að sjá nánari sundurliðun á styrkhöfum hér.

Myndir: Sunday & White Studio 📸