Málþing: Söfn í þágu fræðslu og rannsókna

Þriðjudaginn 14. maí Kl.13:00-14:30

Íslandsdeild ICOM, FÍSOS og safnaráð boða til málþings í aðdraganda Alþjóðlega safnadagsins undir yfirskriftinni Söfn í þágu fræðslu og rannsókna, sem jafnframt er þema safnadagsins árið 2024.

Málþingið verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, þriðjudaginn 14. maí kl. 13:00-14:30 en að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar og í framhaldi af því verður leiðsögn um sýninguna Borghildur Óskarsdóttir: Aðgát.

Fundarstjóri er Arndís Bergsdóttir fyrir hönd Rannsóknaseturs í safnafræðum.

Hér má finna upptöku af málþinginu 

Dagskrá

  • Kl. 13:00: Málþing sett
    • Listasafn Reykjavíkur
      Hlutur kvenna í íslenskri listasögu
      Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur
    • Gerðarsafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs
      Myndlist og náttúra: fræðsla þvert á söfn
      Brynja Sveinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu; Hulda Margrét Birkisdóttir, verkefnastjóri fræðslu í Náttúrufræðistofu; Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu í Gerðarsafni
    • Kvikmyndasafn Íslands
      Kvikmyndarannsóknir á Kvikmyndasafni Íslands: Að standa á öxlunum á sjálfum sér; Loftur Guðmundsson (1892-1952)
      Gunnþóra Halldórsdóttir, verkefnastjóri varðveislu
  • Kl. 14:30: Málþingi slitið og kaffi
  • Kl. 15:00: Ariana Katrín Katrínardóttir leiðir gesti um sýningu Borghildar Óskarsdóttur: Aðgát.
Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn 18. maí ár hvert en ICOM, Alþjóðaráð safna, hefur staðið fyrir deginum síðan árið 1977. Framkvæmd dagsins er samstarfsverkefni Íslandsdeildar ICOM og FÍSOS með öflugum stuðningi frá safnaráði og söfnunum í landinu
Myndir frá málþingi og leiðsögn um sýningu Borghildar Óskarsdóttur.