Íslandsdeild ICOM, FÍSOS og safnaráð boða til málþings í aðdraganda Alþjóðlega safnadagsins undir yfirskriftinni Söfn í þágu fræðslu og rannsókna, sem jafnframt er þema safnadagsins árið 2024.
Málþingið verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, þriðjudaginn 14. maí kl. 13:00-14:30 en að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar og í framhaldi af því verður leiðsögn um sýninguna Borghildur Óskarsdóttir: Aðgát.
Fundarstjóri er Arndís Bergsdóttir fyrir hönd Rannsóknaseturs í safnafræðum.
Hér má finna upptöku af málþinginu
—
Dagskrá
- Kl. 13:00: Málþing sett
-
- Listasafn Reykjavíkur
Hlutur kvenna í íslenskri listasögu
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur
- Listasafn Reykjavíkur
-
- Gerðarsafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs
Myndlist og náttúra: fræðsla þvert á söfn
Brynja Sveinsdóttir, forstöðumaður Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu; Hulda Margrét Birkisdóttir, verkefnastjóri fræðslu í Náttúrufræðistofu; Þorgerður Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu í Gerðarsafni
- Gerðarsafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs
-
- Kvikmyndasafn Íslands
Kvikmyndarannsóknir á Kvikmyndasafni Íslands: Að standa á öxlunum á sjálfum sér; Loftur Guðmundsson (1892-1952)
Gunnþóra Halldórsdóttir, verkefnastjóri varðveislu
- Kvikmyndasafn Íslands
- Kl. 14:30: Málþingi slitið og kaffi
- Kl. 15:00: Ariana Katrín Katrínardóttir leiðir gesti um sýningu Borghildar Óskarsdóttur: Aðgát.
—
Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn 18. maí ár hvert en ICOM, Alþjóðaráð safna, hefur staðið fyrir deginum síðan árið 1977. Framkvæmd dagsins er samstarfsverkefni Íslandsdeildar ICOM og FÍSOS með öflugum stuðningi frá safnaráði og söfnunum í landinu
Myndir frá málþingi og leiðsögn um sýningu Borghildar Óskarsdóttur.