Á árinu 2026 hefur menningarráðherra úthlutað að fenginni umsögn Safnaráðs alls 224.600.000 krónum úr safnasjóði og alls hefur verið veittur 141 styrkur.

Úr aðalúthlutun Safnasjóðs 2026 þann 24. janúar 2026 voru veittar 182.700.000 krónur.

Veittir voru 123 styrkir til eins árs að heildarupphæð 154.700.000 kr. til 51 styrkþega.

Veittir voru átta Öndvegisstyrkir  til viðurkenndra safna sem skiptast svo:  28.000.000 kr. fyrir árið 2026, 29.000.000 kr. fyrir árið 2027 og 16.000.000 kr. fyrir árið 2028. Heildarupphæð Öndvegisstyrkja 2026 fyrir öll styrkárin 2026 – 2028 er þá 73.000.000 kr.   Úthlutanir fyrir árin 2027 og 2028 eru veittar með fyrirvara um fjármögnun sjóðsins.

Eldri Öndvegisúthlutanir fyrir árið 2026 voru 10 talsins og styrkupphæð fyrir árið er 41.900.000 kr.