Þriðjudaginn 4. desmber 2023 kl. 14.00-18.00
Staðsetning fundar: Teams
Mætt: Vilhjálmur Bjarnason formaður, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir varaformaður, Helga Lára Þorsteinsdóttir, Inga Lára Baldvinsdóttir og Hlynur Hallsson.
Fyrir hönd höfuðsafna sátu fundinn: Fyrir Listasafn Íslands: Ingibjörg Jóhannsdóttir; fyrir Þjóðminjasafn Íslands: Harpa Þórsdóttir; fyrir Náttúruminjasafn Íslands: Hilmar Malmquist.
Starfsfólk safnaráðs: Þóra Björk Ólafsdóttir framkvæmdastjóri sem ritar fundargerð og Klara Þórhallsdóttir.
1. Mál til kynningar
- Yfirlit yfir starfsemi ráðsins frá síðasta fundi.
- Aðalúthlutun 2024 – staða ferlis rædd
- Aðalúthlutun 2023 – staða umsókna rædd
- Málefni eins viðurkennds safns rædd
- Rætt um skýrsludrög um stöðu minjaverndar í landinu Minjavernd – staða, áskoranir og tækifæri.
2. Mál til ákvörðunar
- Samþykktar voru tvær skýrslur vegna eftirlits með viðurkenndum söfnum, ein heimsóknarskýrsla og ein matsskýrsla.
- Tilnefning safnaráðs í Minjaráð Minjastofnunar samþykk.
3. Önnur mál
- Ákvarðaður var fundartími 229. safnaráðsfundar.
Fundi slitið kl. 17:20/ÞBÓ