FÍSOS var stofnað árið 1981 í þeim tilgangi að efla samstarf og menntun þeirra sem starfa á lista-, minja- og náttúrufræðisöfnum á Íslandi. Markmið félagsins eru fernskonar og bundin í lög félagsins; að efla samstarf og kynni milli safna og safnmanna, fjalla um safnamál, auka þekkingu og fræðslu á söfnum og safnstörfum og annast samskipti við safnmenn og hliðstæð samtök erlendis. Í öðru lagi að leitast við að tryggja réttindi og hagsmuni félagsmanna. Í þriðja lagi að halda Farskóla safnmanna þar sem starfsmenn safna fái starfsfræðslu og endurmenntun. Og í fjórða lagi að gefa út fréttabréf. Þessum markmiðum er einnig reynt að ná með útgáfustarfsemi, fundahaldi, fyrirlestrum, námskeiðum og ferðalögum.
Vefsíða FÍSOS