Miðvikudaginn 21. ágúst 2024 kl. 15.00-17.00
Staðsetning fundar: Safnahúsið, Hverfisgötu
Mætt: Vilhjálmur Bjarnason formaður, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir varaformaður, Helga Lára Þorsteinsdóttir, Inga Lára Baldvinsdóttir og Hlynur Hallsson.
Fyrir hönd höfuðsafna sátu fundinn: Fyrir Listasafn Íslands: Ingibjörg Jóhannsdóttir; fyrir Náttúruminjasafn Íslands: Ragnhildur Guðmundsdóttir, fyrir hönd Þjóðminjasafns Íslands: Harpa Þórsdóttir.
Starfsfólk safnaráðs: Þóra Björk Ólafsdóttir framkvæmdastjóri sem ritar fundargerð og Klara Þórhallsdóttir.
1. Mál til kynningar
- Yfirlit yfir starfsemi ráðsins frá síðasta fundi
- Kynning á gerð tölfræðiskýrslu frá 2016-2023. Gögn fyrir árin 2018-2022 eru komin inn og kynntar nokkrar niðurstöður vegna þeirra. Ræddir voru möguleikar á birtingu gagnasafns á vef ráðsins og verður það skoðað.
- Sagt var frá stöðu verkefnis um viðbragðsáætlanir viðurkenndra safna. Vegna þessa verkefnis sækir Klara ársfund alþjóðlega Bláa skjaldarins í Rúmeníu september næstkomandi, þar sem fundurinn er tileinkaður 70 ára afmæli Haag-sáttmálans. Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur óskað eftir skýrslu frá safnaráði og öðrum íslenskum þátttakendum í kjölfarið.
- Samráðsfundur með ráðherra – kynntar voru hugmyndir að formi fundar, mögulegum dagsetningum og fundargestum.
- Rætt var um haustferð ráðsins.
2. Mál til ákvörðunar
- Ársskýrsla safnaráðs 2023 lögð fram – verður samþykkt á milli funda
3. Önnur mál
- Næsti safnaráðsfundur ákveðinn.
- Rædd var staða eftirlitsmála.
- Yfirferð á vefsíðu safnaráðs rædd.
- Rætt var um ráðstefnu í Listasafni Reykjavíkur í haust í samstarfi við Bifröst, um stefnur safna og menningarstofnana og þátttöku safnaráðs í henni.
Fundi slitið kl. 17:00/ÞBÓ