28.10.2014 12:00-14:00 í fundarsal á 6. hæð í Þjóðminjasafni Íslands
Viðstödd: Ólafur Kvaran formaður, Anna Sigríður Kristjánsdóttir, Haraldur Þór Egilsson, Guðbrandur Benediktsson, Anna Lísa Rúnarsdóttir, Hilmar J. Malmquist, Svanfríður Franklínsdóttir, Halldór Björn Runsólfsson og Ágústa Kristófersdóttir framkvst. Forföll: Sigríður Björk Jónsdóttir.
Fundargerð 135. fundar undirrituð.
Mál til kynningar
1. Yfirlit yfir starfsemina frá síðasta fundi.
2. Staða safnsjóðs kynnt.
3. Ákvæði um ábyrgðarsöfn í safnalögum skoðuð og samþykkt tillaga, borin fram á fundinum, um að stofna starfshóp þar sem forstöðumenn höfuðsafna ásamt framkvæmdastjóra safnaráðs sitja.
4. Fyrirkomulag styrkveitinga úr safnasjóði: útfærsla verði unnin nánar í samráði við ráðgjafa frá Athygli.
Mál til ákvörðunar
1. Veiting rekstrarstyrkja úr safnasjóði – nýjar úthlutunarreglur safnasjóðs samþykktar og verða nú sendar til kynningar og staðfestingar í mennta- og menningarmálaráðuneyti.
2. Tilboð frá rannsóknarsetri í safnafræði í rannsókn á samspili safna og ferðaþjónustu, samþykkt. Rannsóknin verður unnin í samráði við aðila ferðaþjónustunnar og safnaráð, lokaskil eru 31. mars 2015.
3. Tillaga að útfærslu eftirlitshlutverks safnaráð, samþykkt. Eftirlitið verði þríþætt:
A) Eftirlit með rekstri safns, unnið á skrifstofu safnaráðs. Með yfirferð yfir árlega skýrslu safna til safnaráðs.
B) Eftirlit með húsakost safnsins, aðbúnaði safnkosts, varðveislu gripa og öryggismálum. Með úttekt forvarða á staðnum. (Kostnaðarmat lagt fram til upplýsingar.)
C) Eftirlit með skráningu, aðgengi að safnkosti og miðlun. Með úttekt sérfræðinga á staðnum og á gögnum. Verkefnaráðinn sérfræðingur á sviði safnamála, 1,5 mánuðir á ári næstu þrjú árin.
Önnur mál:
1. HJM vakti athygli á þeirri ákvörðun stjórnvalda að flytja steypireyðarbeinagrind til Húsavíkur og hafa þar til sýnis án fulls samráðs við Náttúruminjasafnið og andstætt hagsmunum þess og lýsti áhyggjum af því fordæmi í meðferð náttúru- og menningarminja sem þetta kann að skapa. Sömuleiðis spurði HJM um málsmeðferð við viðurkenningu Hvalasafnsins á Húsavík á fundi ráðsins þann 2. október.
2. HÞE kynnti stuttlega umræðu um höfundaréttarmál innan Félags íslenskra safna og safnmanna.
Fleira ekki rætt og fundi slitið 14:30/ÁK