19. febrúar 2013, 12-14:30 í Þjóðminjasafni Íslands

Viðstödd: Ólafur Kvaran formaður, Guðbrandur Benediktsson, Haraldur Þór Egilsson, Sigríður Björk Jónsdóttir, Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Halldór B. Runólfsson forstöðumaður Listasafns Íslands og Ágústa Kristófersdóttir frkvstj. (fjarverandi: Ragna Árnadóttir)

1.1. Ný safnalög; formaður kynnti ný safnalög.

1.2. Skýrsla framkvæmdastjóra: aðstaða og dagleg starfsemi safnaráðs kynnt.

1.3. Úthlutun 2013: formaður lagði fram svo hljóðandi tillögu um fyrirkomulag úthlutunar árið 2013.

  1. úthlutunarreglur safnasjóðs frá árinu 2010 verði látnar gilda til bráðabirgða árið 2013
  2. lögð verði höfuð áhersla á úthlutun verkefnastyrkja til safna í stað rekstrarstyrkja .
  3. að hækkun rekstrarstyrkja vegna þjónustusamninga verði hætt en tillit tekið til samningsbundinna samstarfsverkefna við ákvörðun rekstrarstyrkja.
  4. að úthlutun ferðastyrkja verði hætt.

Tillagan var samþykkt.

1.5. Tímaáætlun vegna úthlutunar: samþykkt að umsóknarfrestur í safnasjóð verði til 26. mars 2013 og að tillögu um úthlutun úr sjóðnum verði skilað til ráðherra fyrir 30. apríl.

1.4. Fjárhagsáætlun 2013: kynnt og samþykkt.

2.1 Umsóknir um frestun / breytingu á nýtingu verkefnisstyrkja: farið yfir umsóknir og þær afgreiddar.

3. Önnur mál: Þjóðminjasafni Íslands voru færðar hamingjuóskir í tilefni af 150 ára afmæli safnsins 24. febrúar n.k.

120. fundur – fundartími ákveðinn milli funda

Fleira var ekki rætt og fundi slitið kl. 14:30/ÁK