Miðvikudaginn 13. nóvember 2024 kl. 9.00-10.30
Staðsetning fundar: Foss Hótel, Stykkishólmi
Mætt: Vilhjálmur Bjarnason formaður, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir varaformaður, Helga Lára Þorsteinsdóttir, Inga Lára Baldvinsdóttir og Hlynur Hallsson.
Fyrir hönd höfuðsafna sátu fundinn: Fyrir Listasafn Íslands: Ingibjörg Jóhannsdóttir; fyrir Náttúruminjasafn Íslands: Ragnheiður Guðmundsdóttir; fyrir Þjóðminjasafn Íslands: Harpa Þórsdóttir.
Starfsfólk safnaráðs: Þóra Björk Ólafsdóttir framkvæmdastjóri sem ritar fundargerð og Klara Þórhallsdóttir.
1. Mál til kynningar
- Yfirlit yfir starfsemi ráðsins frá síðasta fundi.
- Umsóknafrestur í aðalúthlutun safnasjóðs 2025 var til 6. nóvember síðastliðinn. Umsóknir til eins árs voru 150 talsins að heildarupphæð 336.261.256 kr. frá 44 viðurkenndum söfnum og 3 öðrum aðilum. Öndvegisumsóknir voru 10 talsins frá 9 söfnum, að heildarupphæð 128.230.000 kr. fyrir árin 3 og fyrir 2025 kr. 51.300.000.
- Farið var yfir minnisblað um samráðsfund safnaráðs og menningarráðherra sem verður haldinn síðar í nóvember.
2. Mál til ákvörðunar
- Tillaga um reglur samráðsfundar menningar- og viðskiptaráðherra og fagfélaga safnastarfs, eins og tilgreindur er í 7.gr. safnalaga nr. 141/2011 samþykkt.
- Tilnefning í Minjaráð Austurlands samþykkt, Elfa Hlín Sigrúnar Pétursdóttir er tilnefnd f.h. safnaráðs.
- Erindi frá Þjóðminjasafni vegna grisjunar safngripa frá Byggðasafni Reykjanesbæjar samþykkt.
3. Önnur mál
- Næsti safnaráðsfundur ákveðinn
- Rædd tímalína vinnu matsnefndar
Fundi slitið kl. 10.30/ÞBÓ