Á árinu 2022 hefur menningarmálaráðherra að fenginni umsögn safnaráðs úthlutað alls 224.413.000 krónum úr safnasjóði.

Úr aðalúthlutun safnasjóðs 2022 í mars voru veittar 135.390.000 krónur.

Veittir voru 94 styrkir til eins árs að heildarupphæð 118.590.000 kr. til 45 styrkþega.

Veittir voru 4 Öndvegisstyrkir  til viðurkenndra safna sem skiptast svo: fyrir árið 2022 kr. 16.800.000, fyrir árið 2023 kr. 18.800.000 og fyrir árið 2024 kr. 11.300.000. Heildarupphæðin fyrir allan styrktímann er 46.900.000 kr. Úthlutanir fyrir árin 2023 og 2024 eru veittar með fyrirvara um fjármögnun safnasjóðs.

Öndvegisstyrkir 2020-2022 fyrir árið 2022 voru 13 talsins og styrkupphæð fyrir árið 2022 er 35.000.000 kr. Styrkveitingar má sjá hér *.

Öndvegisstyrkir 2021-2023 fyrir árið 2022 voru 10 talsins og styrkupphæð fyrir árið 2022 samtals 36.100.000 kr. Styrkveitingar má sjá hér *.

Úr aukaúthlutun safnasjóðs 2022 voru veittir 58 styrkir að heildarupphæð 17.923.000 krónur.

 

 

*Athugið að ef upphæð Öndvegisstyrkja fyrri ára sem eru til greiðslu á þessu ári samræmist ekki upphaflegu úthlutuninni, er skýringin sú að styrkhafi hefur fengið frest á nýtingu styrksins.