Eftirlit með rekstri safns er árlegt eftirlit sem er framfylgt með því að viðurkennd söfn skila Árlegri skýrslu viðurkenndra safna til safnaráðs. Þeirri skýrslu er skilað í gegnum umsóknavef safnaráðs og skilafrestur er að hausti, þegar ársreikningur fyrra árs er tilbúinn. Ýmsar upplýsingar úr þessum skýrslum eru birtar í Ársskýrslum safnaráðs, auk þess sem rekstrarupplýsingar sem koma fram eru nýttar við mat á umsóknum um rekstrarstyrki.
- Gögn sem safn þarf að skila:
- Árleg skýrsla viðurkenndra safna
- Ársreikningur safns
- Ársskýrsla safns
- Viðbragsðáætlun safns
- Þau atriði sem eru skoðuð sérstaklega við eftirlit eru þessi:
- Rekstur safnsins
- Miðlun
- Rannsóknir
- Samstarfsverkefni
- Móttaka skólanema
- Uppfærðar viðbragðsáætlanir