Aðgerðaráætlun fyrir stefnumörkun um safnastarf
Í aðgerðaáætluninni eru settar fram sex aðgerðir sem vinna að markmiðum stefnumörkunar um safnastarf.
Aðgerð 1 – Söfn fyrir öll – kynning á safnastarfi á bls. 6-7
Aðgerð 2 – Efling innviða á bls. 8-9
Aðgerð 3 – Faglegt starf – undirstaða verndunar menningar- og náttúruarfs á bls. 10-11
Aðgerð 4 – Varðveisla þekkingar og samstarf safna á bls. 12-13
Aðgerð 5 – Fræðsluhlutverk safna á bls. 14-15
Aðgerð 6 – Þekkingarsköpun á söfnum og fræðastörf á bls. 16-17
Aðgerðaáætlunin leggur línurnar um áherslumál næstu þriggja ára. Gildistími þessarar fyrstu aðgerðaáætlunar er 2023-2026 en að þeim tíma liðnum verður hún endurskoðuð og ný aðgerðaáætlun sett fram.
Áhersla er lögð á fimm lykilþætti og geta aðgerðirnar tengst einum eða fleiri þáttum í senn. Lykilþættir aðgerðaáætlunar eru eftirfarandi:
• Rekstraröryggi
• Efling þekkingar innan safna
• Faglegur aðbúnaður safnkosts
• Tengsl við samfélagið
• Sjálfbærni og varðveisla til framtíða
Meginmarkmið og aðgerðaráætlun
Sjö meginmarkmið liggja til grundvallar Stefnumörkunar um safnastarf en undir hverju og einu meginmarkmiði eru skilgreindar leiðir þeim til stuðnings. Aðgerðirnar sem hér eru settar fram skarast og styðja við fleiri en eitt meginmarkmið.
Starfshópur um aðgerðaáætlun
Aðgerðaáætlunin er unnin í víðtæku samráði við safnafólk en undirbúningur hennar hófst með vinnustofu á Farskóla FÍSOS – fagráðstefnu safnafólks í október 2021.
Á haustmánuðum 2022 var skipaður starfshópur til að vinna aðgerðaáætlun til að fylgja stefnumörkuninni eftir. Starfshópinn skipuðu 8 manns, fulltrúar höfuðsafna, viðurkenndra safna auk fulltrúa safnaráðs:
Ágústa Kristófersdóttir, framkvæmdastjóri safneignar, Þjóðminjasafn Íslands
Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri, Byggðasafn Skagfirðinga
Dagný Heiðdal, sérfræðingur, Listasafn Íslands
Helga Lára Þorsteinsdóttir, fulltrúi í safnaráði f.h. ICOM og safnstjóri RÚV
Hjörtur Þorbjörnsson forstöðumaður, Grasagarður Reykjavíkur
Hólmar Hólm kynningarfulltrúi, Hafnarborg – menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar
Klara Þórhallsdóttir sérfræðingur, safnaráð
Snæbjörn Guðmundsson sérfræðingur, Náttúruminjasafn Íslands
Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs
Aðgerðaráætlunin er unnin í samstarfi safnaráðs og höfuðsafnanna. Að því komu:
Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri safnaráðs
Klara Þórhallsdóttir, sérfræðingur safnaráðs
Harpa Þórsdóttir, þjóðminjavörður, Þjóðminjasafn Íslands
Dr. Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður, Náttúruminjasafn Íslands
Ingibjörg Jóhannsdóttir, safnstjóri, Listasafn Íslands
Aðgerðaráætlunin var unnin undir verkstjórn Jóhönnu Símonardóttur hjá Sjá ráðgjöf
Safnarad_stefnumorkun_2023_A4