Mánudagur 19. janúar 2026 kl. 14.00-16.30 
Fundarstaður: Austurstræti 5, 4.hæð 

Mætt: Vilhjálmur Bjarnason formaður, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir varaformaður, Guðrún Dröfn Whitehead, Hlynur Hallsson og Jóhanna Erla Pálmadóttir 

Fyrir hönd höfuðsafna sátu fundinn: Fyrir Listasafn Íslands: Ingibjörg Jóhannsdóttir; fyrir Náttúruminjasafn Íslands: Ragnhildur Guðmundsdóttir, fyrir Þjóðminjasafn Íslands: Harpa Þórsdóttir. 

Starfsfólk safnaráðs: Þóra Björk Ólafsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritar fundargerð og Klara Þórhallsdóttir. 

1. Mál til kynningar

1.1. Yfirlit yfir starfsemi ráðsins frá síðasta fundi. M.a. var sagt frá að sjóðurinn fékk lofaða 15 milljóna aukafjárveitingu frá menningarráðuneytinu í desember vegna 2025.  Aðalúthlutun fór til ráðherra í lok desember og er í vinnslu þar.  

    1.2. Aukaúthlutun 2025 hefur verið samþykkt en tillagan var send ráðherra 22. desember og samþykkti hann úthlutun 12. janúar. Styrkþegum var tilkynnt um styrkveitingu 13. janúar. Veittir eru 70 styrkir að heildarupphæð 20.692.500 kr., styrkþegar eru 37 viðurkennd söfn. Alls bárust sjóðnum 76 umsóknir frá 37 viðurkenndum söfnum og var heildarumsóknarupphæð 23.355.500 kr.  Heildarúthlutun 2025 er því 237.852.000 kr., sem er hæsta heildarúthlutun úr sjóðnum frá upphafi.   

      1.3. Úthlutunarboð og árlegur fundur höfuðsafna 2026 rædd, en viðburðurinn verður haldinn í kringum páska. 

        1.4.Fjárhagsáætlun 2026 kynnt, verður til samþykktar á næsta fundi. Rædd voru einstök verkefni ráðsins og fjármagn til þeirra, Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður vildi láta færa til bókar að ræða mætti fyrirkomulag á eftirlitshópum ráðsins. 

          1.5. Frumathugun á mögulegri sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra hefur skipað stýrihóp um mögulega sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Hlutverk hópsins er að gera frumathugun á mögulegri sameiningu stofnananna. Nánar tiltekið er hlutverk hópsins að: greina starfsumhverfi stofnananna og draga saman grunnupplýsingar s.s. um mannauðsmál, húsnæðismál, upplýsingatækni, fjármál o.fl., meta rekstrarleg, fagleg og samfélagsleg rök fyrir sameiningu, meta áhrif sameiningar á starfsemi beggja stofnana, taka saman helstu álitamál og gera tillögu til ráðherra um næstu skref. Tillögum skal skilað til ráðherra eigi síðar en 31. mars 2026. Var safnaráði boðið að eiga fund með stýrihópnum til að koma sjónarmiðum þess á framfæri. Var ákveðið á safnaráðsfundinum að óska eftir því að safnstjórar hinna höfuðsafnanna tveggja myndu einnig sitja fundinn. 

          1.6. Sjóminjasafn Austurlands – breyting á rekstrarformi Sjóminjasafns Austurlands, frá því að vera sjálfseignarstofnun sem alfarið er fjármögnuð af sveitarfélagi í það að verða stofnun sveitarfélags. Stjórn safnsins hefur samþykkt þennan ráðahag. Safnaráð hefur fengið erindi frá safninu og bæjarráði Fjarðabyggðar og hefur sent erindið til menningar-, nýsköpunar, – og háskólaráðuneytisins. 

          1.7. Menningarráðuneytið hefur tilnefnt Þóru Björk í samstarfshóp Norðurlanda og Eystrasaltslanda Nordic-Baltic Cultural Heritage Preparedness Programme. Ráðuneytið mun greiða ferðakostnað og uppihald. 

            2. Mál til ákvörðunar

            2.1. Niðurfelling viðurkenningu Listasafns Einars Jónssonar í kjölfar sameiningar við Listasafn Íslands. Erindi þess efnis verður sent ráðuneyti menningarmála. 

              2.2. Samþykkt umsögn safnaráðs vegna máls nr. S-245/2025 í samráðsgátt – Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Hljóðbókasafn og Kvikmyndasafn). Sjá hér: https://island.is/samradsgatt/mal/4130  

                3. Önnur mál

                • Harpa sagði frá vel heppnaðri árshátíðarferð ÞJMS til Edinborgar og vakti athygli á að búið væri að breyta styrkjasjóði BHM þannig að starfsmenn geta ekki sótt um fyrir náms- og kynnisferðum erlendis aðeins innanlands sem er bagalegt fyrir söfn og safnafólk.  
                • Tímasetning næsta fundar. 

                Fundi slitið kl. 16.00/ÞBÓ