Miðvikudagur 3.desember kl. 14.00-16.30
Fundarstaður: Austurstræti 5, 4.hæð
Mætt: Vilhjálmur Bjarnason formaður, Guðrún Dröfn Whitehead (frá lið 1.2), Hlynur Hallsson, Jóhanna Erla Pálmadóttir og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir varaformaður sem tók þátt á Teams.
Fyrir hönd höfuðsafna sátu fundinn, frá lið 1.2: Fyrir Listasafn Íslands: Ingibjörg Jóhannsdóttir; fyrir Náttúruminjasafn Íslands: Ragnhildur Guðmundsdóttir, fyrir Þjóðminjasafn Íslands: Harpa Þórsdóttir.
Starfsfólk safnaráðs: Þóra Björk Ólafsdóttir framkvæmdastjóri, sem ritar fundargerð og Klara Þórhallsdóttir.
1. Mál til kynningar
1.1. Þessi liður hófst kl. 14.00 – Umræða um umsóknir í aukaúthlutun 2025 og aðalúthlutun 2026. Þennan lið fundarins sátu eingöngu Vilhjálmur Bjarnason, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, Hlynur Hallsson og Jóhanna Erla Pálmadóttir
1.2. Þessi liður hófst kl. 15.00 – Frá síðasta fundi. Hér mættu allir aðrir á fundinn. M.a. sögðu Þóra Björk og Harpa frá Allsherjarþingi ICOM sem þær sóttu í nóvember síðastliðnum og var haldið í Dúbaí að þessu sinni. Harpa sagði einnig af UNESCO ráðstefnu sem hún sótti. Þóra Björk fór í viðtal hjá sjónvarpsstöðinni Sýn. Klara sagði frá vinnustofu um menningartölfræði.
1.3. Kynning á fjölda og heildarupphæð umsókna í aukaúthlutun 2025 og aðalúthlutun 2026
1.4. Sameining tveggja viðurkenndra safna í eigu ríkisins og umræða um áhrif á viðurkenningu. Annars vegar er það sameining Listasafns Einars Jónssonar við Listasafn Íslands sem hefur átt sér aðdraganda í mörg ár.
Einnig var rætt um áætlaða sameiningu Kvikmyndasafns Íslands við Hljóðbókasafnið og Landsbókasafnið. Safnaráð mun senda umsögn í samráðsgátt þegar málið fer þar inn.
1.5. Rætt var um grisjun viðurkenndra safna. Í 17.gr. safnalaga 141/2011 segir „Förgun safngripa. Óheimilt er að farga safngripum nema ríkar ástæður séu til. Heimilt er að grisja safnkost á grundvelli grisjunaráætlunar sem höfuðsafn samþykkir. Það höfuðsafn sem í hlut á tekur ákvörðun um förgun safngripa að fenginni umsögn safnaráðs. „Merki eru um að söfn þekki ekki nægilega vel til reglna um grisjun og hvernig skuli haga henni, sér í lagi hvað varðar skráða vs. óskráða safngripi
2. Mál til ákvörðunar
2.1. Frá Þjóðminjasafni: Grisjunarbeiðni frá Minjasafni Austurlands. Safnaráð gerir ekki athugasemdir við grisjunarbeiðnina.
2.2. Vegna eftirlits: Heimsóknarskýrsla vegna Kvikmyndasafn Íslands var samþykkt og verður send safni og eigenda.
3. Önnur mál
- Ráðið ræddi vænt erindi frá Fjarðabyggð og stjórn Sjóminjasafns Austurlands, sem varðar breytingu á rekstrarformi safnsins, frá því að vera sjálfseignarstofnun sem alfarið er fjármögnuð af sveitarfélagi í það að verða stofnun sveitarfélags. Von er á formlegu erindi á næstu dögum.
- Tímasetning næsta fundar