Þriðjudaginn 21. janúar 2025 kl. 16.00-18.00

Fundarstaður: Austurstræti 5, 4.hæð

Mætt: Vilhjálmur Bjarnason formaður, Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir varaformaður, Helga Lára Þorsteinsdóttir, Inga Lára Baldvinsdóttir og Hlynur Hallsson.


Fyrir hönd höfuðsafna sátu fundinn: Fyrir Listasafn Íslands: Ingibjörg Jóhannsdóttir; fyrir Náttúruminjasafn Íslands: Hilmar Malmquist, fyrir hönd Þjóðminjasafns Íslands: Harpa Þórsdóttir.


Starfsfólk safnaráðs: Þóra Björk Ólafsdóttir framkvæmdastjóri sem ritar fundargerð og Klara Þórhallsdóttir.

1.   Mál til kynningar

  1. Yfirlit yfir starfsemi ráðsins frá síðasta fundi.
  2. Aukaúthlutun 2024 var samþykkt af Loga Einarssyni, menningarráðherra fyrr í janúar og var styrkþegum tilkynnt samdægurs um niðurstöðu úthlutunarinnar. 74 styrkir voru veittir að heildarupphæð 23.660.000 kr., en alls bárust sjóðnum 76 umsóknir frá 38 viðurkenndum söfnum og var heildarumsóknarupphæð 24.860.000 kr.
  3. Rætt var um aðalúthlutun safnasjóðs 2025, en beðið er ákvörðunar ráðherra. Í aðalúthlutun safnasjóðs 2025 bárust 159 umsóknir frá 47 umsækjendum, frá 44 viðurkenndum söfnum og 3 öðrum aðilum.
  4. Eftirlit með viðurkenndum söfnum – rædd voru jákvæð viðbrögð eiganda safns við eftirlitsskýrslu safnaráðs.
  5. Rætt var bréf sem barst frá forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hvar óskað er eftir tillögum um hagræðingu, einföldun stjórnsýslu og sameiningar stofnana fyrir 27. janúar nk. Tillögur, hugmyndir og sjónarmið verða til umræðu hjá starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins en niðurstöðurnar verða nýttar til að móta áætlun til lengri tíma um umbætur í ríkisrekstri.
  6. Verkáætlun 2025 var kynnt.
  7. – liður 1.7 féll niður
  8. Þessi 241. fundur er síðasti fundur núverandi Safnaráðs og er því þökkuð góð störf í þágu viðurkenndra safna á Íslandi og fyrir frábært samstarf á síðastliðnum fjórum árum.

2.   Mál til ákvörðunar

  1. Fjárhagsáætlun 2025 sem var kynnt ráðinu í desember var samþykkt.

3.  Önnur mál

  • Ræddur var möguleiki á n.k. „úrvinnsluskýrslu“ um náttúruvá-atburði sem þegar hafa gerst, s.s. Eyjafjallajökull, Suðurlandsskjálftar, Seyðisfjörður, Grindavík (Reykjaneseldar).
  • Fundargerð frá samráðsfundi ráðherra og fagfélaga frá 18.nóvember síðastliðnum kynnt. Fundargerðin verður birt á vef ráðsins.

Fundi slitið kl. 18.00/ÞBÓ