Mennta- og menningarmálaráðherra hefur tekið til umfjöllunar tillögu safnaráðs frá 18. desember 2013 um viðurkenningu safna samkvæmt safnalögum nr. 141/2011. Ráðherra veitti að tillögu ráðsins 39 söfnum viðurkenningu. Viðurkennd söfn eru:
- Árnesingar Regional Museum
- Borgarfjörður Regional Museum
- Hafnarfjörður Regional Museum
- The Húnvetningar and Strandamanna Regional Museum
- Reykjanesbær Regional Museum
- Skagfjordur Regional Museum
- Byggðasafn Snæfellinga og Hnappdæla
- Westfjords Regional Museum
- Byggðasafnið Görðum, Akranesi
- Hvoll Regional Museum, Dalvík
- The Regional Museum in Skógar
- Icelandic Aviation Museum
- Gljúfrasteinn – hús skáldins
- Reykjavik Botanical Garden
- Hafnarborg, menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar
- Heimilisiðnaðarsafnið
- Icelandic Design Museum
- Landbúnaðarsafn Íslands ses.
- The Icelandic Art Museum
- Árnesingar Art Museum
- Listasafn Kópavogs-Gerðarsafn
- Reykjanesbær Art Museum
- Reykjavik Art Museum
- Ljósmyndasafn Reykjavíkur
- Hornafjörður Cultural Center
- Þingeyingi Cultural Center
- East Iceland Museum
- Egils Ólafsson Museum
- Minjasafn Reykjavíkur
- Akureyri Museum
- Kópavogur Natural History Museum
- Contemporary Art Museum
- Sagnheimar, local history museum
- Icelandic Herring Museum ses.
- Sæheimar Fish Museum
- Tónlistarsafn Íslands
- East Iceland Technical Museum
- Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík
Ákvörðun ráðherra um viðurkenningu safnsins er ótímabundin, en ráðherra getur afturkallað viðurkenningu safns að fenginni tillögu safnaráðs telji ráðið að safnið uppfylli ekki lengur skilyrði viðurkenningar.
Viðurkenndum söfnum ber að starfa í samræmi við ákvæði safnalaga og skilyrði reglugerðar um viðurkenningu safna. Safnaráð hefur lögum samkvæmt eftirlit með safnastarfsemi í landinu.