Fundargerð 77. fundar safnaráðs – úthlutunarfundar 2009
12. febrúar 2009, kl. 12:00 – 17:00, Setbergi, Þjóðminjasafni Íslands
Viðstödd: Margrét Hallgrímsdóttir formaður, Helgi Torfason, Sveinn Kristinsson, AlmaDís Kristinsdóttir, Júlíana Gottskálksdóttir og Rakel Halldórsdóttir.
1. Gerð var lítilsháttar breyting við fundargerð 76. fundar. Fundargerðin verður samþykkt og undirrituð á næsta fundi.
2. Úthlutun úr safnasjóði 2009.
Fjallað var um umsóknir í safnasjóð 2009. Samþykkt var tillaga að úthlutun 2009. Tillagan byggir á nýrri reikniaðferð safnaráðs við útreikning rekstrarstyrkja, sem ákvörðuð var snemma árs 2008, en úthlutað var einnig með hliðsjón af hinni nýju aðferð á því ári.
Miðað var við umfang launakostnaðar í rekstri safna við útreikning rekstrarstyrks. Samþykkt var að veita rekstrarstyrkjum í tveimur flokkum, eftir heildarlaunakostnaði safns. Söfn með launakostnað undir 9.675.000 kr. hljóti 1,6 millj. í rekstrarstyrk. Söfn með launakostnað 9.675.000 og yfir hljóti 2,35 millj. í rekstrarstyrk. Við úthlutun var tekið til greina svar menntamálaráðuneytis til safnaráðs hvað varðar styrki til safna sem hljóta aukastyrki á fjárlögum 2009 til rekstrar eða verkefna. Í bréfi ráðuneytisins kemur fram að þar sem safnaráð hafi ekki auglýst sérstaklega eða kynnt að slíknir styrkir verði teknir til greina við úthlutun 2009 væri slíkt ekki mögulegt í þessari úthlutun. Samþykkt var að veita söfnum með gilda þjónustusamninga um þjónustu á sviði faglegs safnastarfs við setur/sýningar/stofnanir í safnastarfi, sem hafa miðlun menningararfs að meginmarkmiði , 100 þús. kr. hækkun á rekstrarstyrk fyrir hvern gildan samning. Samþykktir voru verkefnastyrkir til nokkurra safna. Rætt var um mikilvægi þess að auka vægi verkefnastyrkja í úthlutun. ADK og SK véku af fundi meðan styrkveitingar til safna sem þau tengjast voru ræddar.
Framkvæmdastjóra var falið að yfirfara tillöguna vandlega. Var samþykkt úthlutun í framhaldi staðfest rafrænt af safnaráði þann 19. febrúar 2009.
Samþykkt var að veita styrkhæfum söfnum skv. 4. gr. safnalaga styrki til að auðvelda söfnunum að senda fulltrúa á Endurmenntunarnámskeið safnmanna á vegum Félags íslenskra safna og safnmanna og Endurmenntunar Háskóla Íslands, dagana 16. og 17. mars 2009. Söfn á stórö-höfuðborgarsvæðinu verða styrkt um 10.000 kr. á safn. Söfn á landsbyggðinni verða styrkt um 20.000 kr. á safn. Sótt verði um styrkinn með bréfi til safnaráðs, bréfinu fylgi staðfesting á greiðslu námskeiðsgjalds fyrir fulltrúa safnsins.
3. Next meeting and other matters. Næsti fundur var ákvarðaður skv. fundaáætlun 26. febrúar n.k.
There was no further discussion and the meeting adjourned at 17:00/RH