Samkvæmt 7.gr. safnalaga nr. 141/2011 skal safnaráð boða til samráðsfundar a.m.k. árlega með menningarráðherra og fulltrúum höfuðsafna ásamt þeim fagfélögum sem koma að starfi þeirra safna sem starfa undir safnalögum.

Formenn eða forstöðumenn eftirtalinna aðila fá boð á fundinn;

  • FÍSOS, Félag íslenskra safna og safnafólks
  • Íslandsdeild ICOM
  • Félag fornleifafræðinga
  • Sagnfræðingafélag Íslands
  • Félag þjóðfræðinga á Íslandi
  • Félag íslenskra náttúrufræðinga
  • Listfræðafélag Íslands
  • Félag íslenskra safnafræðinga
  • NKF-Ísland – Félag norrænna forvarða á Íslandi
  • Námsbraut í safnafræði við Háskóla Íslands
  • SÍM – Samband íslenskra myndlistarmanna

Auk þessara aðila sitja fundinn ráðsmenn í safnaráði ásamt forstöðumönnum höfuðsafnanna og fulltrúar starfsfólks þeirra; Listasafns Íslands, Náttúruminjasafns Íslands og Þjóðminjasafns Íslands.

Reglur um samráðsfund, samþykktar í nóvember 2024:

Fyrirkomulag samráðsfundar

Samráðsfundurinn er eins til tveggja klukkutíma staðfundur sem boðaður er að jafnaði einu sinni á ári. Boðað er með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Safnaráð setur fundarstjóra og fundarritara.

Hluti dagskrár getur verið helgaður fyrirfram ákveðnu efni. Þátttakendur munu þá senda spurningar eða málefni til umræðu til ráðherra, með góðum fyrirvara svo ráðherra getur undirbúið sig.

Þátttakendur – fagfélög og stofnanir

Gert er ráð fyrir að hver þátttökuaðili sendi einn gest fyrir sína hönd, að jafnaði formann hvers félags eða forstöðumanni stofnunar. Sá aðili getur sent annan stjórnarmann (eða staðgengil) ef boðsgestur á ekki heimangengt. Aðra aðila má bjóða á fundina, ef þörf krefur.