Alþjóðlegi safnadagurinn 2025

Í tilefni Alþjóðlega safnadagsins 2025 fer fram málþing miðvikudaginn 21. maí í fyrirlestrasal Þjóðminjasafn Íslands.  Í heimi sem er á sífelldri hreyfingu og átök verða sífellt meira áberandi býður þema safnadagsins í ár, Framtíð safna í síbreytilegum samfélögum, okkur að huga að hlutverki og umhverfi safna í þessu tilliti.

Íslandsdeild ICOM, FÍSOS og Safnaráð bjóða til málþingsins en þar verður meðal annars fjallað um söfn í samhengi við hið samfélagslega rof, framtíðarhorfur þeirra og möguleika á að hafa áhrif. Hvaða merkingu hafa söfn þegar samfélagið er klofið og pólarísering/skautun eykst? Hvaða ábyrgð bera menningarstofnanir gagnvart almenningi sem tengslamyndandi þekkingarmiðstöðvar og samfélagskjarnar? Hvernig mótast söfn af umhverfi sínu, auk utanaðkomandi þrýstings og krafna um afstöðuleysi? Hér má finna Facebook viðburðinn

Nánari dagskrá verður kynnt á næstu dögum.

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn 18. maí ár hvert en ICOM, Alþjóðaráð safna, hefur staðið fyrir deginum síðan árið 1977. Framkvæmd dagsins er mikilvægt samstarfsverkefni Íslandsdeildar ICOM og FÍSOS, sem nýtur öflugs stuðnings frá safnaráði og söfnunum í landinu.