Nýting styrkja úr safnasjóði árið 2013

Skilafrestur til 30. apríl 2015

Samkvæmt safnalögum ber þeim sem fá styrk úr safnasjóði að skila lokaskýrslu innan árs frá áætluðum lokum verkefnis. Nú líður senn að því að tvö ár séu liðin frá úthlutun styrkja árið 2013 og þar sem styrkir eru veittir til eins árs má gera ráð fyrir að ár verði liðið frá lokum allra verkefna þann 30. apríl n.k.

Skýrslum um nýtingu styrkja úr safnasjóði skal því skilað í síðasta lagi þann 30. apríl 2015 á sniðmáti sem sækja má here.

Greinargerð skal skila í einu undirrituðu eintaki sem sent er í pósti til:
Museum Fund
Þjóðminjasafni Íslands
Suðurgötu 41
101 Reykjavik
Afrit skal senda í tölvupósti  til safnarad@safnarad.is.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu ráðsins.