Sumarlokun safnaráðs frá 1. júlí – 4. ágúst

Skrifstofa safnaráðs verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með miðvikudeginum 1. júlí til 4. ágúst. Ef erindið er brýnt má ná í Þóru Björk Ólafsdóttur framkvæmdastjóra safnaráðs í síma 820-5450. Við minnum ferðalanga á að hægt er að heimsækja söfn hvar sem er á landinu og á heimasíðu okkar má finna kort sem sýnir staðsetningu …

Safnaráð heimsækir Grasagarð Reykjavíkur

Safnaráð hélt 255 safnaráðsfund sinn í Grasagarði Reykjavíkur þann 27. maí. Grasagarður Reykjavíkur er viðurkennt safn í eigu Reykjavíkurborgar og eina viðurkennda safnið á Íslandi sem er grasagarður – lifandi safn undir berum himni. Hjörtur Þorbjörnsson safnstjóri tók á móti ráðinu og sagði frá sögu garðsins og þróun hans í gegnum árin. Einnig fjallaði hann …

Íslensku safnaverðlaunin afhent 2026

Listasafn Íslands hlaut Íslensku safnaverðlaunin 2026 Þann 18. maí á Alþjóðlega safnadeginum voru Íslensku safnaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn. Íslandsdeild Alþjóðaráðs safna (ICOM) og Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS) standa saman að verðlaununum, sem eru viðurkenning veitt annað hvert ár íslensku safni fyrir framúrskarandi starfsemi. Forseti Íslands Halla Tómasdóttir afhenti verðlaunin á Kjarvalsstöðum og …

Vorráðstefna ICOM Nord – Reykjavík 2026

Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi: Sameiginleg saga okkar og framtíð fyrir öll Á tímum sem einkennast af hnattrænni spennu, samfélagslegum breytingum og óvissu í umhverfismálum er æ oftar horft til safna sem vettvangs fyrir opna umræðu og aukinn skilning milli fólks. Vorráðstefna ICOM Nord 2026 leiðir saman safnafólk frá Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum til að …

Alþjóðlegi safnadagurinn 2026

Alþjóðlegi safnadagurinn 18. maí – yfirskrift dagsins í ár er: Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi Sem vettvangur fræðslu og þekkingar gegna söfn mikilvægu hlutverki í að efla friðsamleg samskipti og gagnkvæma virðingu. Í tilefni af Alþjóðlega safnadeginum í maí 2026 er ykkur boðið að taka þátt í að varpa ljósi á yfirskrift ársins Söfn …

Vorfundur höfuðsafna og safnaráðs – söfn og gervigreind

Fimmtudaginn 16. apríl kl.13 fór fram árlegur Vorfundur höfuðsafna og safnaráðs undir yfirskriftinni, söfn og gervigreind, sem haldinn var í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Í kjölfar fundarims fór fram úthlutunarboð safnaráðs þar sem Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri afhenti styrki úr aðalúthlutun Safnasjóðs 2026 f.h. menningarráðuneytisins. SÖFN OG GERVIGREIND Dagskrá Vorfundar höfuðsafnana og safnaráðs fimmtudaginn 16. apríl …

Aðalúthlutun safnasjóðs 2026

Menningarráðherra hefur úthlutað úr aðalúthlutun safnasjóðs 2026 Úthlutunarboð safnaráðs  fór fram í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands við hátíðlega athöfn að viðstöddum góðum gestum fimmtudaginn 16. apríl.
Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu  ávarpaði gesti og  úthlutaði 131 styrk, alls 182.700.000 krónum úr safnasjóði til 51 styrkþega. 
 Styrkir til eins …

Úthlutunarboð safnaráðs í Þjóðminjasafni Íslands

Aðalúthlutun 2026 Úthlutunarboð safnaráðs verður haldið í Myndasal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 16. apríl kl.16:00.  Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti mun úthluta styrkjum úr aðalúthlutun safnasjóðs við hátíðlega athöfn. Úthlutunarboðið er í beinu framhaldi af vorfundi Höfuðsafnanna og safnaráðs í Þjóðminjasafni Íslands. Á fundi safnaráðs í desember sl. samþykkti …

Kallað eftir viðbragðsáætlunum – 27. mars 2026

Viðurkennd söfn þurfa að skila afriti af viðbragðsáætlun til Safnaráðs fyrir föstudaginn 27. mars.   Safnaráð hefur staðið fyrir fjarnámskeiðum í gerð viðbragðsáætlana, þar sem öllum viðurkenndum söfnum hefur verið boðin þátttaka í samstarfi við Nathalie Jacqueminet forvörð. Síðasta fjarnámskeiðinu lauk í febrúar sl., en þá eiga öll viðurkennd söfn að hafa fengið tækifæri til að sitja námskeiðið og fá …