Íslensku safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár og er ætlað að vekja athygli á því sem vel er gert á íslenskum söfnum. Þeim er jafnframt ætlað að efla faglegan metnað og vera hvatning til að kynna menningu þjóðarinnar á framsækinn og áhugaverðan hátt. Að safnaverðlaununum standa Íslandsdeild ICOM og Félag íslenskra safna og safnamanna (FÍSOS).

Verðlaunin eru veitt einu safni sem þykir hafa skarað fram úr og vera til eftirbreytni. Ekki er gerður greinarmunur á tegundum safna og koma því öll söfn á landinu til greina; minja- og byggðasöfn, listasöfn, náttúrugripasöfn og önnur sérsöfn.

Safnverðlaunin voru fyrst veitt árið 2000. Valnefnd skipuð fulltrúum félaganna og fulltrúa frá safninu sem síðast hlaut verðlaunin velur úr innsendum hugmyndum en óskað er eftir tillögum frá almenningi jafnt sem fagmönnum. Viðurkenningin sem felst í verðlaununum er bæði heiður og hvatning söfnunum þrem sem hljóta tilnefningu ekki síður en því safni sem hlýtur verðlaunin.

Verðlaunahafar

2022: Minjasafnið á Akureyri

2020: Þjóðminjasafn Íslands

2018: Listasafn Árnesinga

2016: Byggðasafn Skagfirðinga

2014: Rekstrarfélag Sarps

2012: Byggðasafn Suður-Þingeyinga, Húsavík

2010: Nýlistasafnið

2008: Byggðasafn Vestfjarða á Ísafirði

2006: Minjasafn Reykjavíkur

2003: Þjóðminjasafn Íslands, myndadeild

2002: Byggðasafn Árnesinga

2001: Listasafn Reykjavíkur

2000: Síldarminjasafnið á Siglufirði

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu ICOM