Viðurkenning safna, árlegur umsóknarfrestur

31. ágúst síðasti skiladagur umsókna 

Safnaráð hefur samþykkt að síðasti skiladagur umsókna um viðurkenningu samkvæmt safnalögum, til að umsóknin verði afgreidd áður en umsóknarfrestur í safnasjóð rennur út, sé 31. ágúst ár hvert. Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki afgreiddar fyrr en að lokinni næstu úthlutun úr safnasjóði.

Aðeins viðurkennd söfn önnur en söfn í eigu ríkisins geta sótt um rekstrarstyrki til sjóðsins. Öll viðurkennd söfn geta sótt um styrki til skilgreindra verkefna.
Frekari upplýsingar um viðurkenningu safna er að finna hér.