Úthlutun úr safnasjóði 2015

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að fenginni umsögn safnaráðs úthlutað úr safnasjóði 2015, alls 108,6 milljónum króna. Af þeirri upphæð renna tæplega 70 milljónir til einstakra verkefna en 39 milljónir í rekstrarstyrki til viðurkenndra safna um land allt.

Alls bárust að þessu sinni umsóknir um styrki í samtals 130 verkefni. Styrkjum er úthlutað til  86 verkefna og eru þeir frá 250.000 kr. upp í 2 milljónir króna. Hér má sjá lista yfir úthlutun úr sjóðnum í ár.