Upptökur frá 118. fundi safnaráðs

Síðasti fundur sitjandi ráðs

Þann 6. desember s.l. var 118. fundur safnaráðs haldinn í Þjóðminjasafni Íslands. Fundurinn var öllum opinn og voru þar flutt erindi um starfsemi safnaráðs frá 2001, rekstur safna og breytingar þær sem verða á safnamálum nú um áramótin.

Safnaráð lét taka erindin upp og eru upptökurnar aðgengilegar hér fyrir neðan:
Dagskrá fundar:

 

15:00 Margrét Hallgrímsdóttir formaður safnaráðs býður gesti velkomna.

15:10 Starfsemi safnaráðs  frá 2002-2012, Ágústa Kristófersdóttir framkvæmdastjóri safnaráðs

15:30 Rekstur safna sem njóta styrks úr safnasjóði. Þóra Björk Ólafsdóttir safna- og viðskiptafræðingur.

16:00 Kaffihlé

16:20 Breytingar um áramót, kynning á yfirfærslu verkefna í kjölfar lagabreytinga. Eiríkur Þorláksson sérfræðingur í mennta og menningarmálaráðuneyti.

16:40 Umræður

17:00 Fundi slitið.

Fundarstjóri Guðný Dóra Gestsdóttir.