Umsóknir í safnasjóð 2013

umsóknarfrestur til 26. mars

Hægt verður að sækja um styrki í safnasjóð árið 2013 á heimasíðu safnasjóðs frá 1. mars næst komandi.

Umsóknarfrestur verður til 26. mars 2013

Safnaráð úthlutar úr sjóðnum samkvæmt safnalögum nr. 141/2011 og úthlutunar-reglum ráðsins frá 24. júní 2010.Til þess að geta sótt um rekstrarstyrk úr safnasjóði þarf safn að uppfylla skilyrði skv. ákvæðum 10. gr. safnalaga m.a. um að safn skuli hafa tryggðan fjárhagsgrundvöll.

Söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum munu ekki hljóta rekstrarstyrk úr safnasjóði sama ár, en geta sótt um verkefnastyrki.

Tekið verður tillit til samningsbundinna samstarfsverkefna við söfn/setur/sýningar/aðra starfsemi á sviði safnastarfs við ákvörðun rekstrarstyrkja.

Áhersla verður lögð á úthlutun verkefnastyrkja.