Dagskrá málþings um söfn og ferðaþjónustu í safnahúsinu 18. nóvember kl. 13-16

Skráning fer fram á vef Íslandsstofu

Safnaráð, Íslandsstofa og Samband íslenskra sveitarfélaga standa að málþingi um söfn og ferðaþjónustu þar sem rætt verður um hlutverk og stöðu safna og tengdrar starfsemií íslenskri ferðaþjónustu. Málþingið er styrkt af Þjóðminjasafni Íslands.

Umfang safnageirans á Íslandi hefur aukist mikið á síðustu árum og kannanir meðal erlendra ferðamanna hafa leitt í ljós mikinn áhuga á íslenskri menningu og sögu.Söfn eru talin mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu en þörf er á að efla hlutverk og stöðu safnanna innan ferðaþjónustunnar.

Dagskrá:

13:00 Setning málþings – ávarp frá fulltrúa mennta- og menningamálaráðuneytis
13:15 Sigurjón Baldur Hafsteinsson prófessor í safnafræði og framkvæmdastjóri hjá Rannsóknasetri í safnafræðum
13:25 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir forstöðumaður hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála
13:35 María Reynisdóttir sérfræðingur hjá atvinnuvegaráðuneytinu
13:50 Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu
14:10 Fyrirspurnir og umræður
14:30 Kaffihlé
14:45 Sigrún Þormar stjórnarmaður í Samtökum um söguferðaþjónustu
15:00 Kristján Guðmundsson framkvæmdastjóri Markaðsstofu Vesturlands
15:15 Helga Maureen Gylfadóttir formaður Félags íslenskra safna og safnmanna
15:30 Halldór Halldórsson formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga
15:45 Fyrirspurnir og umræður
16:00 Léttar veitingar

Fundarstjóri: Sif Jóhannesdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga

Tekið er við skráningum  á vef Íslandsstofu (Opnast í nýjum vafraglugga) til klukkan 12:00 fimmtudaginn 17. nóvember.