Alþjóðlegi safnadagurinn 18. maí 2018

Ofurtengd söfn: ný nálgun, nýir gestir

Alþjóðlegi safnadagurinn er haldinn ár hvert þann 18. maí af International Council of Museums (ICOM). Þátttakendur eru um 35.000 söfn í 140 löndum. Söfn um allan heim skipuleggja dagskrá þann dag, helgina eða jafnvel vikuna alla sem 18. maí ber upp á og hefur það verið gert öll árin síðan 1977.

Á ári hverju velur ICOM Alþjóðlega safnadeginum yfirskrift er tengist málefnum sem eru í brennipunkti í samfélaginu. Ofurtengslamyndun (e. hyperconnectivity) er hugtak sem smíðað var árið 2001 yfir þær fjölmörgu samskiptaleiðir sem við búum yfir í dag, svo sem samskipti í eigin persónu, tölvupóst, netspjall, síma og net. Þetta alheimssamskiptanet verður flóknara, fjölbreyttara og samtengdara með hverjum deginum sem líður. Söfn hafa fylgt þessari þróun í hinum ofurtengda veruleika nútímans. Því valdi Alþjóðasafnaráðið (ICOM) Alþjóðasafnadeginum 2018 yfirskriftina „Ofurtengd söfn: Ný nálgun, nýir gestir”. 

Ómögulegt er að átta sig á hlutverki safna nema líta til allra þeirra tengsla sem þau mynda. Þau eru órjúfanlegur hluti nærsamfélagsins, menningarlandslagsins og hins náttúrulega umhverfis. Svo er tækninni fyrir að þakka að söfn geta nú náð langt út fyrir sinn nærtækasta markhóp og fundið nýja gesti með því að nálgast safneign sína á annan hátt; hvort sem er með því að koma safneigninni á stafrænt form, bæta margmiðlunarþáttum við sýningar eða með einföldum aðferðum á borð við myllumerki sem gerir gestum kleift að deila upplifun sinni á samfélagsmiðlum.

Þó er tæknin ekki rót allra þessara nýju tengsla. Söfn leggja hart að sér við að viðhalda mikilvægi sínu í samfélaginu og því hefur athyglin beinst í sífellt ríkari mæli að nærsamfélaginu og þeim fjölbreyttu hópum sem það samanstendur af. Afleiðingin er sú að á síðustu árum höfum við séð ótal samvinnuverkefni verða til undir handleiðslu safna með þátttöku minnihlutahópa, frumbyggja og stofnana í nærsamfélaginu. Svo hrífa megi þessa nýju hópa og styrkja tengslin við þá verða söfn að finna nýjar leiðir til að túlka og kynna safneign sína.

Sjá vefsíðu Íslandsdeildar Icom